Magic Linen

Hördúkur. Cox grár

21.995 kr

VSK

Dásamlegur borðdúkur úr silkimjúkri hör sem hentar fyrir öll tilefni og hægt að nota bæði hversdags og spari. 

Stærð 150x200cm, 150x250cm, 150x350cm

  • Framleiddur í Evrópu úr 100% hör
  • Steinþvegin til að ná fram hámarks mýkt
  • OEKO-TEX vottað hráefni og því án allra eiturefna

Þvottaleiðbeiningar.

Má þvo bæði í þvottavél og í höndunum í volgu vatni, allt að 40°. Ef notaður er hærri hiti má gera ráð fyrir að dúkurinn hlaupi um allt að 10%.  Notið milt þvottakerfi og þvottarefni og þvoið með svipuðum lit. Bleikið ekki.

Ekki er mælt með að nota mýkingarefni - hvorki fljótandi né í blöðum - til að ná fram mýkt. Það veikir efnið. Búið er að steinþvo dúkinn og ná þannig fram hámarksmýkt á efninu.

Má fara í þurrkara en til að ná dúknum nokkuð sléttum er gott að láta hann í smá stund í þurrkara og hengja hann svo upp. Svo er að sjálfsögðu tilvalið að hengja út á snúru þegar veður leyfir og fá í hann góða lykt og spara rafmagnið.

Geymið hör á þurrum og köldum stað og fjarri sólarljósi, ekki í plastpoka en koddaver gæti verið sniðugt.