

Gestahandklæði
1.995 ISK
BYLOLA
By Lola handklæðin og teppin eru öll frá sama fjölskyldufyrirtækinu í Tyrklandi þar sem aðeins eru notuð gæða efni eins og bómull,hör og bambus. Einnig vinna þeir aðeins með fyrirtækjum sem lita efnin sem hafa Standard 100 OEKO-TEX vottun.
Handklæðin eru þunn, þorna fljótt,taka ekki mikið pláss í íþróttatöskunni og ekki í þvottavélinni heldur. Tilvalin í sundið,ræktina,ferðalagið,útivistina og jógað. Bestu handklæðin til að þurrka hárið.
Tyrknesku handklæðin eru ýmist kölluð Peshtemal eða Hamam og byggja á áralangri hefð þar í landi, þau þykja einstaklega rakadræg,fyrirferðalítil og þorna hratt og vel.
Það er mælt með að þvo handklæðin á 40 gráðum og hengja til þerris eða setja í þurrkara, mælt er með að þvo handklæðin fyrir fyrstu notkun þar sem þau mýkjast og verða betri með hverjum þvotti.