AURORA

KARFA SAMUEL - 2 STÆRÐIR

10.995 kr

VSK

Körfur sem staflast ofan í hvor aðra.  Handofnar í Brama Town, Sierra Leone.  Tágarnar eru unnar úr þurrkuðum bambusrunnum sem vaxa villtir í nágrenni við þorpið.

Fáanlegir í tveimur stærðum.

Lítil: Hæð ca. 32 cm, Breidd ca. 22 cm

Stór: Hæð ca. 38 cm, Breidd ca. 30 cm

Nánari upplýsingar:

Efnið er fengið úr skógi í kringum Brama Town í Sierra Leone eða frá nærliggjandi samfélögum, sem selja það vefurunum. Þeir byrja á að sníða það til, sem þýðir að þeir skera efnið í jafnar lengjur áður en þeir kljúfa það í sundur - fyrst í svera búta og síðan í fínar tágar. Efnið þarf þá að þorna í sólinni í að minnsta kosti 30 mínútur þó að þurrkunin geti tekið allt að tvo eða þrjá daga þegar blautt er. Þegar efnið er orðið nógu þurrt hreinsa vefararnir það og þá geta þeir loksins byrjað að vefa vöruna sína. Hver vara er svo ofin af þorpsbúum Brama Town sem hafa stundað þessa iðju frá blautu barnsbeini. Hver vara tekur langan tíma og mikla natni. Oft hefur verið erfitt að koma hugmyndum hönnuða Hugdettu almennilega í rétt form en með góðri og langri samvinnu hefur það ferli náð að þróast í réttan farveg.